Becky með góða hárið stigin fram

Becky hefur loksins stigið fram, flestum að óvörum.
Becky hefur loksins stigið fram, flestum að óvörum. Stilla úr Lemonade

Poppdrottningin Beyoncé gerði allt vitlaust á dögunum þegar hún sendi frá sér hina opinskáu plötu, Lemonade.

Fjölmiðlar, sem og aðdáendur, fóru mikinn enda vildu allir komast að því hver hinn umtalaði hjónadjöfull Becky er.

Nú er Becky stigin fram, öllum að óvörum, en einstaklingurinn sem gekkst við verknaðnum er ekki sá sem flesta hafði grunað, líkt og fram kemur í umfjöllun  Mirror.

„Já það er ég,“ viðurkenndi söngvarinn Chris Martin. „Ég og Jay höfum verið að hittast af og til undanfarin 24 ár,“ sagði hinn gamansami Martin.

„Við förum bara saman í keilu, en fólk á það til að draga upp ranga mynd af þessu þar sem við tölum oft um hversu stórar kúlur við séum með. Ég er feginn að hafa létt þessu af mér,“ gantaðist spéfuglinn með, en hann hefur lengi þekkt hjónakornin Beyoncé og Jay Z.  

Spéfuglinn Chris Martin gekkst á dögunum við því að vera …
Spéfuglinn Chris Martin gekkst á dögunum við því að vera Becky. Í góðu gamni þó. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson