Ekki lengur klikkaði og skemmtilegi gaurinn

Mark Wahlberg segist hafa róast mikið með árunum.
Mark Wahlberg segist hafa róast mikið með árunum. Stilla úr Ted

Mark Wahlberg viðurkenndi á dögunum að hann hefði róast mikið með árunum.  Leikarinn var á sínum yngri árum þekktur fyrir mikið partístand, en hann segist hafa þroskast í kjölfar þess að hafa stofnað fjölskyldu.

„Ég er ekki lengur klikkaði og skemmtilegi gaurinn sem ég var áður,“ sagði Wahlberg í viðtali á dögunum.

„Ef maður getur ekki vaxið úr grasi og þroskast við það að eignast börn mun ekkert virka fyrir mann. Maður hafði allan þennan tíma til að gera sína eigin hluti, síðan er maður skyndilega ábyrgur fyrir að ala upp einstaklinga og sjá fyrir öðrum.“

Wahlberg og eiginkona hans, Rhea Durham, eiga saman fjögur börn á aldrinum sex til tólf ára líkt og fram kemur í frétt Daily Mail.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson