Í dag hefst á mbl.is Sumarljósmyndakeppni mbl.is og Canon. Hægt er að taka þátt í keppninni með því að fara inn á Fólkið á mbl.is og smella á Ljósmyndasamkeppni í undirvaldmyndinni. Keppnin er ókeypis og öllum opin. Hver þátttakandi má senda inn eins margar myndir og honum sýnist og engu skiptir hvenær mynd er tekin eða á hvaða myndavél.
Keppninni lýkur 31. ágúst næstkomandi og þá velur dómnefnd þrjár bestu myndirnar sem hljóta vegleg verðlaun. 1. verðlaun eru Canon EOS 650D myndavél með 18–55mm linsu, 2. verðlaun Canon IXUS 240 HS myndavél og 3. verðlaun eru Canon PIXMA MG5450 fjölnota prentari.