Æfði 13 tíma á dag

Blake Lively var í hörkuformi þegar tökum á The Shallows …
Blake Lively var í hörkuformi þegar tökum á The Shallows lauk. AFP

Leikkonan Blake Lively þurfti að taka á honum stóra sínum fyrir hlutverk í hennar nýjustu mynd, The Shallows.

Ekki þurfti Lively aðeins að koma sér í hörkuform áður en tökur hófust, heldur voru tökurnar sjálfar sérlega krefjandi.

„Ég var með frábæran þjálfara, en hann gaf mér spark í rassinn með besta mögulega og heilbrigðasta hætti,“ sagði leikkonan í samtali við ET-online.

Myndin segir frá ungri konu sem verður fyrir árás hákarls, en hún er að miklum hluta til tekin við strendur Ástralíu.

„Að vera í öldugangi líkt og þessum, og á sundi í svona langan tíma, gerði það að verkum að ég var miklu sterkari þegar tökum lauk. Ég var að æfa í 13 tíma á dag, því tökurnar voru í rauninni líkamsrækt.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson