Ósigur enska liðsins hefur verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarna daga, og hafa eiginkonur ensku leikmannanna síður en svo sloppið við umtalið.
Coleen Rooney, eiginkona Waynes Rooneys, fékk í kjölfar leiksins yfir sig reiðigusu á samfélagsmiðlum þar sem eiginmaður hennar var kallaður öllum illum nöfnum.
Þá var hún meðal annars beðin að skipa Rooney að segja af sér sem fyrirliði landsliðsins líkt og fram kemur í frétt Mirror.
„Allir eiga rétt á sinni skoðun, en ég er miður mín – alveg eins og sérhver stuðningsmaður enska landsliðsins,“ skrifaði Coleen í færslu á Twitter.
Skömmu síðar deildi hún annarri færslu, þar sem netverjar voru teknir á teppið.
„Ég skil ekki hvers vegna fólk er að úthúða Coleen hérna. Spilaði hún? Valdi hún leikmennina? Hún var þarna að styðja strákana, hagið ykkur.“
Everyone's entitled to their opinions but am Gutted like every other England fan.
— Coleen Rooney (@ColeenRoo) June 27, 2016
Don't understand people giving @ColeenRoo abuse on here. Did she play? Did she pick the team? She was there supporting the lads. Behave
— Callum. (@callumjones_21) June 27, 2016