Dennis Quaid sækir um skilnað í þriðja sinn

Dennis Quaid og Kimberly Buffington hafa slitið sambandi sínu.
Dennis Quaid og Kimberly Buffington hafa slitið sambandi sínu. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

Hjónin Dennis Quaid og Kimberly Buffington hafa sagt skilið við hvort annað, eftir að hafa verið gift í 12 ár. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem skötuhjúin ákveða að slíta sambandi sínu, en þau hafa tvisvar áður sótt um skilnað frá hvort öðru.

Leikarinn sendi frá sér yfirlýsingu, þar sem ákvörðunin var kunngjörð.

„Eftir vandlega umhugsun höfum við Kimberly ákveðið að binda endi á 12 ára hjónaband okkar. Ákvörðunin var tekin í vinsemd og með gagnkvæmri virðingu fyrir hvort öðru.“

Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem skötuhjúin sækja um skilnað, en þau hafa tvisvar áður bundið endi á sambandið líkt og fram kemur í frétt Daily Mail.

Árið 2012 sótti Buffington um skilnað, en dró þó pappírana til baka skömmu síðar. Seinna sama ár lagði Quaid síðan fram skilnaðarpappíra, áður en skötuhjúin sættust á ný.

Hjónin eiga saman tvö börn, og munu þau fara með sameiginlegt forræði yfir þeim. Quaid var áður giftur leikkonunni Meg Ryan, og eiga þau saman einn uppkominn son.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson