Leikstjórinn Jason Edward Alexander, eða Jace Alexander, sem meðal annars leikstýrði þáttunum Law & Order, Rescue Me og Prison Break hlaut á dögunum 10 ára skilorðsbundinn dóm fyrir vörslu barnakláms.
Alexander var handtekinn í júlí 2015 en við húsleit á heimili hans fannst bæði barnaklám á tölvu sem og á hörðum diski í hans eigu.
Alexander játaði brot sín fyrr á árinu, en hann átti yfir höfði sér sjö ára fangelsisvist.
Eins og fram kemur í frétt People hefur nú verið dæmt í málinu og hlaut leikstjórinn 10 ára skilorðsbundinn dóm.