Fer fram á sameiginlegt forræði

Louis Tomlinson og sonurinn, Freddie Reign.
Louis Tomlinson og sonurinn, Freddie Reign. Skjáskot Daily Mail

Louis Tomlinson, einn meðlima drengjasveitarinnar One Direction, vill fá sameiginlegt forræði yfir syni sínum Freddie Reign Tomlinson.

Pilturinn er fimm mánaða gamall, en hann býr hjá móður sinni, Briönu Jungwirth, og er söngvarinn sagður ósáttur við hversu lítil samskipti hann fær að hafa við soninn.

Tomlinson hefur því stefnt Jungwirth og fer fram á sameiginlegt forræði, líkt og fram kemur í frétt Mirror. Þá fer hann fram á að drengurinn dvelji til helminga hjá honum og til helminga hjá móður sinni.

Tomlinson flutti til Bandaríkjanna til að geta eytt tíma með syni sínum, en hann leigir hús fyrir mæðginin í námunda við heimili sitt í Calabasas.

Tomlinson og barnsmóðir hans kynntust snemma á síðasta ári og áttu í skammvinnu ástarsambandi, en upp úr slitnaði áður en drengurinn kom í heiminn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson