Lisa Marie Presley sækir um skilnað

Lisa Marie Presley hefur sótt um skilnað frá eiginmanni sínum.
Lisa Marie Presley hefur sótt um skilnað frá eiginmanni sínum. Ljósmynd / skjáskot People

Lisa Marie Presley, dóttir Elvis Presley, sótti á dögunum um skilnað frá eiginmanni sínum, Michael Lockwood, eftir 10 ára hjónaband.

„Þau eru ekki að reyna að vinna í sínum málum til að geta tekið aftur saman. Hún er komin með nóg,“ sagði lögmaður Presley, Ronald Litz, í samtali við People.

Ástæður skilnaðarins eru margþættar að sögn Presley, en hún heldur því fram að söngvarinn hafi notfært sér auð hennar, auk þess sem hún segir hann ekki hafa sinnt föðurlegum skyldum sínum.

Hjónin eiga saman tvö börn, tvíburana Harper Vivienne Ann og Finley Aaron Love, og fer Presley fram á forræði yfir þeim.

Lockwood er fjórði eiginmaður Presley, en hún var áður gift Michael Jackson, Nicolas Cage og Danny Keough.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson