Rita Ora flutt á sjúkrahús

Rita Ora vann yfir sig.
Rita Ora vann yfir sig. Ljósmynd / skjáskot Twitter

Söngkonan Rita Ora þurfti að leggjast inn á spítala sökum ofkeyrslu á dögunum, en hún hefur unnið baki brotnu undanfarna mánuði.

Heimildamenn Daily Mail segja söngkonuna hafa unnið yfir sig, en hún hefur bæði verið að vinna að nýrri tónlist auk þess sem hún fer með hlutverk í kvikmyndinni Fifty Shades Darker.

„Já, hún var úrvinda vegna þess að hún hefur ekki tekið sér frí. Undanfarna mánuði hefur hún unnið sleitulaust, og þegar hún getur fer hún út að skemmta sér. Undanfarið hefur hún verið að fljúga á milli Vancouver og Los Angeles, í Vancouver er hún að taka upp 50 Shades Darker, en í LA vinnur hún að tónlist.“

Að sjálfsögðu deildi stjarnan tíðindunum með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum, en við færsluna skrifaði hún: „Dagurinn í dag var býsna erfiður, en ég kemst í gegnum hann. Ég vil þakka aðdáendum mínum og vinum fyrir að sýna mér stuðning. Ég elska ykkur öll.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson