Segja sambandið sviðsett

Taylor Swift og Tom Hiddleston hafa ekki farið leynt með …
Taylor Swift og Tom Hiddleston hafa ekki farið leynt með samband sitt. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

Samband Taylor Swift og Tom Hiddleston er afar nýtt af nálinni, en það hefur engu að síður náð að vekja talsverða eftirtekt.

Skötuhjúin hafa verið mikið í sviðsljósinu undanfarið og hafa margir tjáð sig um málið á samfélagsmiðlum.

Fjöldi fólks hefur fleygt fram þeirri skoðun að samband skötuhjúanna sé sviðsett, og að líkamstjáning þeirra segi allt sem segja þarf.

„Hvort sem Taylor og Tom eru ástfangin eða ekki líta uppstillingarnar þeirra út fyrir að vera sviðsettar og nokkuð sjálfsmeðvitaðar,“ sagði Judi James, sem sérhæfir sig í að rýna í líkamsstöðu fólks, í samtali við Mirror.

„Annað hvort eru þau að nota ástaratlot sín á opinberum vettvangi sem nokkurs konar fréttatilkynningu til að auglýsa samband sitt, eða þau eru bæði æst í að sýnast eftirsóknarverð.“

„Tom skilgreinir sjálfan sig greinilega sem gamaldags sjarmatröll, þar sem hann kyssti handabak Swift. En er þetta eitthvað sem nútíma karlmaður gerir utan kvikmyndatökuvers?“

Mörgum þykir rómantíkin heldur til ósannfærandi.
Mörgum þykir rómantíkin heldur til ósannfærandi. Ljósmynd / skjáskot People
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson