Georg Bretaprins fagnar 3 ára afmælinu

Hér má sjá Georg Bretaprins færa hundinum Lupo ís.
Hér má sjá Georg Bretaprins færa hundinum Lupo ís. Ljósmynd/Matt Porteous

Georg Bretaprins heldur í dag upp á þriggja ára afmæli sitt. Í tilefni þess deildu foreldrar hans, þau Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja, þessum skemmtilegu myndum af syninum.

Í tilkynningu frá Kensingtonhöllinni segir: „Þau Vilhjálmur og Katrín vona að myndirnar af Georg muni gleðja fólk og þakka um leið fyrir allar fallegu kveðjurnar í tilefni afmælisins.“ Samkvæmt vef The Mirror mun Georg eyða afmælisdeginum á sveitasetri fjölskyldunnar.

Það var ljósmyndarinn Matt Porteous sem tók myndirnar af drengnum og sagði andrúmsloftið á heimili fjölskyldunnar afar afslappað og gott.

Á myndunum má sjá Georg leika sér í rólu og gefa hundinum Lupo ís. Hann er afar smekklega klæddur að vanda en móðir hans, Katrín, er þekkt fyrir vandaðan og fallegan stíl.

Georg flottur til fara.
Georg flottur til fara. Ljósmynd/Matt Porteous
Georg rólar sér á þriggja ára afmælinu.
Georg rólar sér á þriggja ára afmælinu. Ljósmynd/Matt Porteous
Þriggja ára töffari.
Þriggja ára töffari. Ljósmynd/Matt Porteous
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson