Cara Delevingne fer með hlutverk í kvikmyndinni Suicide Squad, þar sem hún leikur máttuga seiðkonu. Leikkonan segir leikstjóra myndarinnar, David Ayer, hafa gefið sér fremur sérstæðar ráðleggingar til að setja sig í stellingar fyrir hlutverkið.
„Hann sagði að ef ég væri einhvern tímann úti í skógi, vonandi á fullu tungli, ætti ég að klæða mig úr öllum fötunum og vera þar eins lengi og ég gæti,“ sagði leikkonan í spjallþætti Conan O‘Brien.
„Það fyndna er að ég lenti í því að vera í skógi, á fullu tungli, svo ég hugsaði með mér – andskotinn, hvað á ég eiginlega að gera? Þannig að ég afklæddist bara. Sem betur fer var enginn á svæðinu, þannig að það sá þetta enginn,“ sagði leikkonan að endingu.
Frétt Daily Mail