Lögregla kölluð á heimili Lohan vegna gruns um heimilisofbeldi

Egor Tarabasov og Lindsay Lohan trúlofuðu sig ekki alls fyrir …
Egor Tarabasov og Lindsay Lohan trúlofuðu sig ekki alls fyrir löngu. Skjáskot Instagram

Lögreglan var kölluð á heimili leikkonunnar Lindsay Lohan um helgina, eftir að hróp og köll heyrðust frá svölum hennar. Að sögn braut lögreglan sér leið inn í húsið vegna gruns um heimilisofbeldi.

Samkvæmt frétt Daily Mail biðlaði Lohan til nágranna sinna og lýsti því yfir að unnusti hennar, Egor Tarabasov, hefði veist að henni og reynt að kyrkja hana. Lögreglan var kölluð til, en þegar hún mætti á svæðið nokkrum mínútum síðar voru bæði Lohan og Tarabasov á bak og burt.

Talsmaður lögreglunnar greindi frá því að lögregluþjónar hefðu verið kallaðir til vegna tilkynningar um heimilisofbeldi. Enginn hefði verið í íbúðinni, en haft hefði verið uppi á íbúum nokkru síðar. Ekkert brot hefur verið tilkynnt og engin handtaka farið fram.

Sjónarvottar segja Lohan hafa vakið nágranna sína með hrópum sínum.

„Hún vakti okkur með öskrum. Ég hafði verulegar áhyggjur. Fjöldi lögreglubíla mætti á vettvang og allir í götunni vöknuðu og fylgdust með út um gluggann.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson