Ætla að gera kaupmála fyrir brúðkaupið

Mariah Carey og unnusti hennar James Packer ætla að gera …
Mariah Carey og unnusti hennar James Packer ætla að gera kaupmála áður en þau ganga að eiga hvort annað. AFP

Söngdívan Mariah Carey er að undirbúa sitt þriðja brúðkaup, en hún er trúlofuð ástralska auðkýfingnum James Packer.

Söngkonan ræddi sambandið við tímaritið Complex á dögunum, þar sem hún játaði að hún hefði aldrei átt von á því að hjónaband hennar og Nick Cannon, sem einnig er barnsfaðir hennar, myndi fara í vaskinn.

„Ég bjóst aldrei við því að ég myndi eignast börn og ég bjóst ekki við því að ég myndi eignast börn með einhverjum og síðan skilja. En hlutir gerast og þetta er í góðu lagi. Barnanna vegna vildi ég þó óska þess að þetta hefði ekki gerst á þennan hátt.“

Söngkonan játaði að hún hafi ekki verið að leita að ástinni þegar hún var kynnt fyrir Packer. Hún segir þau skötuhjúin hafa svipað skopskyn og að þau leyfi hvort öðru að njóta sín.

„Ég ætlast ekki til að hann komi á sérhvern lítinn viðburð með mér og öfugt. Hann hefur mikið á sinni könnu og ég sömuleiðis. Það er gagnkvæmur skilningur,“ játaði Carey, sem einnig greindi frá því að skötuhjúin ætluðu sér að gera kaupmála áður en þau myndu ganga í það heilaga.

„Við myndum gjarnan vilja að þetta væri ekkert stórmál, en sannleikurinn er sá að þetta þarf að vera það því það eru hlutir sem eru eingöngu í minni eigu. Svo á hann risavaxna stórsteypu sem ég vil ekki taka frá honum. Þannig að það þarf að ganga frá þessum hlutum.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson