Snáðinn kominn með nafn?

Oliver og frú eru ekki þekkt fyrir að gefa börnum …
Oliver og frú eru ekki þekkt fyrir að gefa börnum sínum hefðbundin nöfn. Ljósmynd / skjáskot Instagram

Stjörnukokkurinn Jamie Oliver og frú eignuðust á dögunum sitt fimmta barn þegar þeim fæddist lítill drengur. Snáðinn virðist nú hafa fengið nafn, sem er harla óvenjulegt líkt og fram kemur í frétt Mirror.

Sérkennilegt nafnaval þarf þó ekki að koma neinum á óvart, enda bera eldri börnin fjögur fremur sérstæð nöfn. Elsta dóttir hjónanna heitir Poppy Honey Rosie, þá kemur Daisy Boo Pamela, þriðja dóttirin heitir Petal Blossom Rainbow en eldri sonur hjónanna heitir hins vegar Buddy Bear Maurice.

Jools, eiginkona Oliver, virðist hafa greint frá nafninu á Instagram-síðu sinni. Á myndinni stendur „Dream Big River,“ og telja því margir að snáðinn hafi verið nefndur River. Við færsluna birti hin stolta móðir síðan mynd af eldflaug og vilja margir því meina að snáðinn heiti River Rocket.

Hjónin hafa þó enn ekki staðfest neitt í þeim efnum og þegja sem gröfin.

🚀 💙

A photo posted by Jools Oliver (@joolsoliver) on Aug 22, 2016 at 10:16am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson