Jennifer Lopez einhleyp á ný

Jennifer Lopez er sögð hafa skilið að skiptum við kærastann …
Jennifer Lopez er sögð hafa skilið að skiptum við kærastann sinn. AFP

Söngdrottningin Jennifer Lopez hefur sagt skilið við kærasta sinn, dansarann Casper Smart.

Skötuhjúin hafa átt í sambandi síðan 2011, en þau kynntust á tónleikaferðalagi stjörnunnar þar sem Smart starfaði sem dansari.

„Jennifer og Casper eru hætt saman. Það var ekkert drama og sambandsslitin voru gerð í góðu,“ er haft eftir heimildamanni tímaritsins People.

„Sambandið leið einfaldlega undir lok. Þau munu halda áfram að vera vinir, en eru ekki lengur par. Þetta var allt saman á gert friðsamlegum nótum.“

Skötuhjúin á meðan allt lék í lyndi.
Skötuhjúin á meðan allt lék í lyndi. Ljósmynd / skjáskot People
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þín á hleypidómum varðandi þá sem eru öðru vísi en þú. Taktu til þín það hól sem þú færð því þú átt það skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gættu þín á hleypidómum varðandi þá sem eru öðru vísi en þú. Taktu til þín það hól sem þú færð því þú átt það skilið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir