Borgar barnsmóðurinni fúlgur fjár

Mick Jagger verður brátt 8 barna faðir.
Mick Jagger verður brátt 8 barna faðir. AFP

Rokkhundurinn Mick Jagger er ekki dauður úr öllum æðum, en hann á von á sínu áttunda barni í desember.

Jagger og barnsmóðir hans, dansarinn Melanie Hamrick, eiga ekki í sambandi en söngvarinn hefur þó einsett sér að sjá fyrir erfingjanum og móður hans.

Líkt og fram kemur í frétt Mirror ætlar Jagger að fjárfesta í húsi fyrir barnsmóður sína, hvar svo sem hún ákveður að setjast að, auk þess sem hann mun greiða henni ríkulegan framfærslueyri þar til barnið er vaxið úr grasi.

Heildarupphæðin er talin nema um 2,5 milljónum Sterlingspunda, sem samsvarar tæpum 386 milljónum íslenskra króna.

Líkt og áður sagði á Jagger sjö börn fyrir, en þau eru á aldrinum 44 til 17 ára.

Barnsmóðir söngvarans, Melanie Hamrick.
Barnsmóðir söngvarans, Melanie Hamrick. Ljósmynd / skjáskot Mirror
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson