Það stendur ekki á svörunum þegar harðir Justin Bieber aðdáendur eru spurðir að því hvað sé svo heillandi við kanadísku poppstjörnuna. Það er röddin, hárið, persónuleikinn og lögin bara allt. Klukkan 7 í morgun voru aðdáendur farnir að bíða við innganginn að Kórnum og það er óhætt að segja að stemningin þar hafi verið góð þegar mbl.is kom þar við uppúr kl. 10.