Nick Gordon ber ábyrgð á dauða Bobbi

Bobbi Kristina Brown og Nick Gordon.
Bobbi Kristina Brown og Nick Gordon. AFP

Nick Gordon hefur verið fundinn sekur um að bera ábyrgð á dauða Bobbi Kristina Brown. NBC greinir frá því að Nick hafi ekki mætt ekki í dómsal í gær þegar dómurinn var kveðinn upp.

Nick og Bobbi Kristina, sem var dóttir Whitney Houston og Bobby Brown, voru kærustupar. Bobbi Krist­ina var 22 ára göm­ul þegar hún lést 26. júlí á síðasta ári. Þegar hún fannst í baðkar­inu var Gor­don á staðnum og hafði reynt lífg­un­araðgerðir. Hún var flutt á sjúkra­hús í Roswell í Georgíu og sett í önd­un­ar­vél og haldið sof­andi. Tím­inn leið og Bobbi Krist­ina sýndi eng­in merki um bata. Var þá ákveðið að hætta allri lækn­is­meðferð og flytja hana á líkn­ar­deild í Duluth í Georgíu þar sem hún lést.

Mál gegn Nick var fyrst höfðað í júní 2015 þar sem hann var meðal annars ásakaður um að misnota Bobbi og hafa gefið henni „eitraðan kokteil“ og í kjölfarið drekkt henni í baðkari af köldu vatni. Tilgangurinn hafi verið að sækjast eftir arfi Bobbi. Nick hefur ekki verið ákærður á glæpsamlegan hátt, heldur er hann dæmdur fyrir að bera ábyrgð á dauða Bobbi.

Lögfræðingar Nick hafa áður neitað öllum ásökunum á hendur honum og kallað þær hneykslanlegar og óviðeigandi.

Bobby Brown, faðir Bobbi, segir í yfirlýsingu að hann sé ánægður með ákvörðun dómarans, en hann vilji enn fá svör um hvað kom nákvæmlega fyrir dóttur hans.

„Dómsúrskurðurinn segir mér að Nick Gordon sé ábyrgur. Nú þarf ég að vinna úr öllum þessum tilfinningum og treysta á Guð til að koma mér og fjölskyldu minni í gegnum þetta,“ sagði Bobby.

Bobby hefur áður gefið það út að hann telji að Nick beri ábyrgð á dauða Bobbi og Whitney, sem lést árið 2012 eftir að hafa tekið of stóran skammt fíkniefna.

„Þetta er mér eng­in ráðgáta. Ég veit ná­kvæm­lega hvað kom fyr­ir dótt­ur mína. Það sem kom fyr­ir dótt­ur mína er það sama og kom fyr­ir Whitney. Það er aðeins ein mann­eskja sem var á svæðinu í bæði skipt­in,“ sagði Brown í viðtali í júní 2016.

Whitney Houston og Bobby Brown voru gift um tíma og …
Whitney Houston og Bobby Brown voru gift um tíma og eignuðust saman dótturina Bobbi Kristina. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson