Watts og Schreiber hætt saman

Liev Schreiber og Naomi Watts.
Liev Schreiber og Naomi Watts. AFP

Leikaraparið Liev Schreiber og Naomi Watts hafa ákveðið að slíta sambandi sínu eftir 11 ára samband en frá þessu greina fjölmiðlar vestanhafs.

Schreiber, sem hefur meðal annars leikið í Scream-myndunum og Watts, sem hefur tvívegis verið tilnefnd til Óskarsverðlauna, eiga tvö börn saman.

„Undanfarna mánuði höfum við komist að þeirri niðurstöðu að best sé að við höldum áfram með líf okkar í sitt hvoru lagi. Við tökum þessa ákvörðun með mikilli ást, virðingu og vinskap. Við hlökkum til að ala börnin okkar upp saman,“ sagði parið fyrrverandi í sameiginlegri yfirlýsingu.

„Við biðjum fólk um að hugsa um börnin og þeirra einkalíf,“ bættu þau við.

Drew Barrymore, Lisa Marie Presley, Denn­is Quaid og James McA­voy hafa öll til­kynnt um skilnað við maka sína. Skilnaður Brad Pitt og Angelinu Jolie vofir einnig yfir og er því farið að tala um árið 2016 sem ár skilnaða í Hollywood.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson