Mun aldrei fyrirgefa eiginmanninum framhjáhaldið

Katie Price og eiginmaður hennar, Kieran Hayler.
Katie Price og eiginmaður hennar, Kieran Hayler. Ljósmynd / skjáskot Mirror

Fyrrverandi glamúrfyrirsætan Katie Price greindi nýverið frá því að hún myndi aldrei geta fyrirgefið eiginmanni sínum, Kieran Hayler, fyrir að halda við vinkonu hennar. Price ákvað því að skrifa endurminningar sínar til að hefna sín á honum.

„Ég vildi særa þau bæði. Ég vildi að allir vissu hvað þau hefðu komið hræðilega illa fram við mig. Ég veit að það er skrýtið, því ég er enn með Kieran en ég vildi særa hann á sama tíma.“

„Ég vil að hann upplifi sársaukann sem ég fann fyrir. Bókin er mín leið til að ná fram hefndum. Hann olli mér svo miklu hjartasári að ég hef enn ekki jafnað mig.“

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Price ritar æviminningar sína, því um hennar sjöundu ævisögu er að ræða. Price hefur auk þess greint frá því að skrifin hafi reynst henni erfið, og að hún geti ekki hugsað sér að lesa bókina á ný.

Líkt og fram kemur í frétt Mirror þurfti eiginmaður Price þó að lesa bókina.

„Hann sagði að það hefði ekki verið ánægjulegt, en tók bókinni þó eins og hún er. Hann viðurkenndi að hann ætti þetta skilið.“

Frétt mbl.is: „Ég vona að hún hljóti kvalafullan dauðdaga“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson