Lendingarbúnaður einkaþotu Christiano Ronaldo gaf sig í lendingu vélarinnar á mánudaginn, með þeim afleiðingum að vélin skemmdist.
Fótboltakappinn var ekki um borð í vélinni þegar hún lenti á flugvelli í Barcelona, en hann leigir vélina stöku sinnum út.
Engin alvarleg slys urðu á fólki, en samkvæmt frétt Mirror þurfti að loka flugbrautinni um nokkra stund. Þá er flugmaðurinn sagður hafa þurft að leita sér aðhlynningar vegna smávægilegra meiðsla.
Ronaldo festi kaup á vélinni, sem er að gerðinni Gulfstream G200, á síðasta ári en hún kostaði 19,5 milljónir Bandaríkjadala eða rúmlega 2,2 milljarða íslenskra króna.
Ronaldo var staddur í Þýskalandi með liðsfélögum sínum þegar slysið varð, þar sem hann var að undirbúa sig fyrir leik gegn Borussia Dortmund.