„Íslensk náttúra gríðarlega mikilvæg fyrir framtíðina“

Ólafur Elíasson í Hörpu og í baksýn víðkunnur glerhjúpurinn sem …
Ólafur Elíasson í Hörpu og í baksýn víðkunnur glerhjúpurinn sem hann skapaði. "Vitaskuld er stundargróðinn sem hafa má af ferðamönnum spennandi í byrjun en ... sem stendur sýnist mér Íslendingar láta ferðamenn komast upp með meira en þeir skilja eftir," segir hann um ferðamannastrauminn. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Ég er mjög spenntur fyrir Marshall-húsinu og þeirri aðstöðu sem ég get komið mér þar upp en ég er ekki síður ánægður með það hvað Nýlistasafnið og Kling og Bang fá þar falleg og verðskulduð sýningarrými. Hvorutveggja er afar mikilvæg listamannarekin starfsemi og ég samgleðst þeim,“ segir Ólafur Elíasson.

Eins og fram hefur komið verður Ólafur með vinnustofu á efstu hæð Marshall-hússins á Granda, en þessi fyrrverandi fiskiðja verður senn opnuð að nýju með nýrri og gjörbreyttri starfsemi, sýningarsölum fyrir myndlist og veitingastað.

Ólafur segist hafa í nokkur ár litast um eftir húsnæði hér á landi, „bæði til að vinna í og til að sýna verk eftir mig. Ég hef skoðað ýmislegt en núna gefst þetta tækifæri og ég er í því ferli að ákveða nákvæmlega hvernig ég ætla að nýta mitt rými í húsinu. Hluta þess mun ég nota sem vinnustofu og hluta sem sýningarrými. Mjög margir hafa spurt hvers vegna ekki sé hægt að ganga að fleiri verkum eftir mig hér á landi. Núna vona ég að það muni breytast. Og ég vinn að verkum sem ég mun hafa þarna til sýnis og finnst það mjög spennandi,“ segir hann.

Ólafur var hér á dögunum að taka við hinum virtu Lennon Ono-friðarverðlaunum úr hendi Yoko Ono í Hörpu, tónlistarhöllinni fjölsóttu sem er klædd stærsta varanlega listaverki hans, glerhjúpnum með síbreytilegri LED-lýsingunni. Ono kaus að þessu sinni að verðlauna fjóra listamenn, auk Ólafs hina víðkunnu Ai Weiwei frá Kína, hinn bresk-indverska Anish Kapoor og fjöllistakonuna ungversku Katalin Ladik. Verðlaunahafarnir gáfu verðlaunaféð áfram til viðurkenndra góðgerðarstofnana.

Fjölbreytileg verk Ólafs eru um þessar mundir, rétt eins og mörg undanfarin ár, áberandi á hinni alþjóðlegu myndlistarsenu. Sumarsýningin í görðum og sölum Versala var að þessu sinni hans; tröllvaxinn foss féll meðal annars af himni ofan og þokuverk hjúpaði hluta garðs Loðvíks sólkonungs – sumarið áður sá annar verðlaunahafa Ono, Anish Kapoor, um að setja upp verk í garðinum. Ólafur hannaði nýverið athyglisverða brú yfir eitt síkið í Kaupmannahöfn og meðan á Parísarráðstefnunni um loftslagsmál stóð í fyrravetur bráðnaði Ísklukka hans á torgi í borginni og vakti mikla athygli; verk hans hafa verið á fjölda safnasýninga og þá hefur hann unnið að samstarfsverkum með listamönnum og hugsuðum, meðal annars Ai Weiwei.

Sólarrafhlöðuknúið ljós þeirra verkfræðingsins Frederik Ottesen, Little Sun, hefur líka vakið mikla athygli, en því er ætlað að bæta líf fólks í þriðja heiminum. Í gegnum árin hefur Ólafur unnið fjölda verka beint um og út frá íslenskri náttúru; nægir að nefna ólíkar ljósmyndaraðirnar frá hálendinu og verk þar sem hann vinnur með hraun, jökla og jarðveg, auk þess sem ýmis náttúruleg fyrirbæri landsins birtast í innsetningum hans af ýmsu tagi. Ólaf má með réttu kalla einn af mikilvægustu og þekktustu sendiherrum Íslands og íslenskrar náttúru.

„Ég hef mikinn áhuga á að velta því fyrir mér hvernig fólk getur sameinast um að bæta lífsgæði í samfélögum,“ segir Ólafur og setur það í samhengi við friðarverðlaunin sem Yoko Ono veitir hér annað hvert ár. „Sá styrkur sem sprettur af öflugu menningarlífi eins og við þekkjum á Norðurlöndum er til að mynda öflugur friðarboði.

Hér á Norðurlöndum sprettur slík borgaraleg samstaða mikið frá menningargeiranum og þá á ég við hann í sinni víðustu mynd; listirnar jafnt og skólakerfið og íþróttafélögin. Fólk með fjölbreytilegan menningarlegan bakgrunn mætist og sameinast umburðarlynt um sammannleg gildi; við getum horft saman á málverk og verið ósammála um það hvað við sjáum, ég hendi þér ekki út þótt við séum ósammála um liti í verki eftir Kjarval. Það gerir okkur ekki að óvinum.

Algjörar andstæður þessa má sjá í tilhneigingu til popúlisma sem víða skýtur upp kollinum, en í kjarna slíkra hugmynda er að einangra fólk og skapa ótta.“

Senn lýkur í Versölum í Frakklandi sumarsýningu staðarins sem Ólafur …
Senn lýkur í Versölum í Frakklandi sumarsýningu staðarins sem Ólafur vann sérstaklega inn í víðfrægan garðinn. Stærsta verkið er þessi foss sem steypist úr mikilli hæð. "Náttúran er með afar mikilvæg," segir Ólafur en hann hefur í verkum sínum unnið með afar fjölbreytilegan hátt með náttúrleg fyrirbæri. Ljósmynd/Anders Sune Berg

Sjálfsagt að beita menningunni

Ólafur segir að fólk sem starfi innan menningargeirans velti því iðulega fyrir sér hvort það eigi að beita menningunni meðvitað, eins og í baráttu fyrir friði og í stjórnmálum. Sjálfum finnst honum það sjálfsagt mál, því menningargeirinn sé svo sterkur að honum megi auðveldlega beita án þess að hann líði fyrir það.

En finnst Ólafi að listamenn eigi að stíga fram og tjá sig opinberlega eða eiga verk þeirra ein að tala? Oft heyrist krafa um að listamenn eigi að vera virkari í opinberri umræðu.

„Við skulum fara varlega í að setja reglur um slíkt, að eitt sé rétt en annað rangt. Það að skapa list er í grunninn aðferð til að tala og tjá sig. En það væru mistök að halda að verkið eitt, hvar sem það er sett upp eða kynnt, geti bara talað fyrir sig. Stundum eru frábær listaverk í óvirkri liststofnun og stundum getur listamaðurinn sjálfur brúað bilið milli möguleikanna sem felast í listaverki og mögulegra áhorfenda, með því að bæta fleiri lögum við það. Það getur skipt sköpum og sumir listamenn eru betri í slíku en aðrir. Því er rétt að setja engar reglur um hvað listamenn eigi eða geti gert. Þó er ein regla til staðar: ef verkið er slæmt frá byrjun er afar fágætt að hægt sé að tala það upp í að verða gott! Ef verk er á hinn bóginn gott og enginn talar fyrir það mun það samt alltaf vera gott listaverk.“

Náttúran er mér afar mikilvæg

Mörg verka Ólafs hafa sterka náttúruvísun eða fjalla beinlínis um náttúruna, oft íslenska. Lítur hann á sig sem talsmann náttúrunnar?

„Ég er mjög meðvitaður um að náttúran er mér afar mikilvæg,“ svarar hann.“ Og ég er sannfærður um að í framtíðinni verði náttúran samfélögum meira virði en við getum mögulega áttað okkur á í dag. Við sjáum allrahanda vísbendingar um það út um löndin, í ólíkum samfélögum, að náttúran verði þeim sífellt mikilvægari.

Svo er alltaf spurning hvort maður kjósi að taka þátt í einhvers konar baráttu eða umræðu um málefni náttúrunnar, og þá hvaða stefnu eigi að fylgja. Ég met Björk mikils og tel hana hafa bætt mjög mikilvægum þáttum í umræðuna um íslenska náttúru. Ég tel Andra Snæ Magnason líka hafa algjörlega rétt fyrir sér þegar hann fjallar um þessi mál, en ég get líka séð hvernig slík afstaða, sem ég samsama mig með, skiptir fólki í fylkingar, með og á móti.

Ég velti því fyrir mér hvernig við getum rætt um málefni íslenskrar náttúru þannig að öllum finnist þeim geta tekið þátt, jafnt Andri Snær og þeir sem eru ósammála einhverju sem hann hefur fram að færa; sannleikurinn er sá að þetta er náttúra okkar allra og framtíð allra byggir saman á henni. Ég hef því mikinn áhuga á að finna út hvernig eigi að sýna fram á að náttúran sé í raun lykillinn að framtíðarsveigjanleika íslensks samfélags. Það væri afskaplega sorglegt ef náttúran væri ástæða þess að fólk skipaði sér í andstæðar fylkingar.“

Ólafur tekur fram að hann sé ekki langdvölum á Íslandi þótt hann komi hingað reglulega; hann starfrækir fjölmenna vinnustofu og kennir í Berlín en er hins vegar búsettur með fjölskyldu sinni í Danmörku. Hann veltir fyrir sér hvaða leið hann færi í náttúruverndarbaráttu ef hann byggi hér, hvort baráttan snerist um að löggjöfin yrði bætt og náttúruskattar styrktir. Það yrði að snúast um hvað kæmi í fyrsta lagi náttúrunni best og í öðru lagi hvað gæfi samfélaginu sem mestan sveigjanleika.

Eitt af mörgum ljósmyndaverkum sem Ólafur Elíasson hefur skapað með …
Eitt af mörgum ljósmyndaverkum sem Ólafur Elíasson hefur skapað með náttúru Íslands sem fyrirmynd, Glacial series frá árinu 1999. Eintök af þessu upplagsverki eru í eigu viðkunnra og virtra safna beggja vegna Atlantshafs, eins og mörg verkanna sem listamaðurinn hefur unnið hér á landi síðustu tvo áratugi. (Ólafur Elíasson, the Glacial series) mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Hvað þessi mál varðar þurfa allir að stefna að sameiginlegum markmiðum og geta séð mikilvægi náttúrunnar til langs tíma litið,“ segir hann. „Og ég tel að menn hljóti að sjá nú, ef litið er á ástand jarðar, hvað íslensk náttúra hlýtur að vera gríðarlega mikilvæg fyrir framtíðina.“

Sýnir síaukinn og að margra mati nánast óviðráðanlegur straumur ferðamanna hingað til lands það ekki glögglega?

„Mér heyrist allir vera að velta fyrir sér hvernig eigi að takast á við þessa að sumu leyti óvæntu ferðamannasprengingu. Vissulega er áhugavert að velta ástæðum hennar fyrir sér en mikilvægari eru þó svörin við spurningunni hvernig megi koma í veg fyrir, eins og margir hafa bent á, að ferðamenn taki landið hreinlega yfir og landið verði fyrir skaða. Slíkt hefur gerst í mörgum löndum. Vitaskuld er stundargróðinn sem hafa má af ferðamönnum spennandi í byrjun en ég held að allir hljóti líka að sjá hættuna sem felst í því ef ferðamannastraumurinn fær að aukast án nokkurs regluverks og aðhalds. Sem stendur sýnist mér Íslendingar láta ferðamenn komast upp með að taka meira en þeir skilja eftir. Það þýðir að hugmyndin um að þetta séu góð viðskipti sé tálsýn sem stendur. Með þessu áframhaldi grunar mig að áhuginn fyrir landinu kunni að dvína hratt, því upplýsingar um minnkandi gæði í upplifunum spyrjast hratt.

Ég er alls ekki á móti ferðamönnum en það verður að finna leiðir til að allir hafi hag af ferðamannastraumnum – það væri ákjósanlegt að ná að viðhalda heilbrigðri ferðaþjónustu næsta aldarfjórðunginn með áframhaldandi styrkingu efnahagslífsins og markvissum aðgerðum til að koma í veg fyrir að þetta sé bara blaðra sem springur fljótlega.“

Íslendingar gefa upplifanir

Blaðamaður var mikið á vegum úti síðastliðið sumar og upplifði hvað ferðamannafjöldinn, jafnt á hálendinu sem hefðbundnari ferðamannastöðum, var gríðarlegur og margir staðir augsýnilega vanbúnir.

Ólafur bendir á að það nægi að fara í óbyggðir annarra landa, heimsækja vinsælustu bandarísku þjóðgarðana eða svissnesku og austurrísku Alpana, til að sjá hvernig megi takast á við ferðamannaflóðið. „Það getur verið gert með alls kyns varúðarráðstöfunum og stýringu, með dagspössum, hálendissköttum, sköttum á fjórhjóladrifsbíla og bílaleigubíla; sem stendur eru Íslendingar að gefa þessar upplifanir, þær eru ókeypis. Íslendingar borga fyrir upplifun gestanna, fyrir þá að koma og upplifa landið. Í öðrum löndum berjast stóru ferðafélögin, eins og Ferðafélag Íslands og Útivist, fyrir því að rétt regluverk sé til staðar og reyna að hafa áhrif á löggjöfina. Þetta eru frábær samtök, keyrð áfram af ástríðufullum áhugamönnum, en þau ættu líka að hafa vakið stjórnmálamenn af blundi sínum og láta þá taka af krafti á þessum málum, svo ekki sé níðst á viðkvæmri náttúru og gengið sé vel um auðlindir náttúrunnar.“

Hann segir að um þessi mál séu líkast til skiptar skoðanir. „En varðandi það fólk sem er ekki mjög áhugasamt um náttúruna hlýtur fyrsta áskorunin að vera að fá það til að skilja að náttúran sé verðmæti í sjálfu sér fyrir samfélagið. Þá á ég ekki bara við fólk í viðskiptum og verkamenn heldur ekki síst bændur landsins, og einkum unga bændur. Við viljum ekki sjá hreppa og sýslur landsins takast á við ferðamannastrauminn með skammtímagróða einan að leiðarljósi, svo barnabörnin muni síðar spyrja hvers vegna ömmur þeirra og afar hafi selt landið svo ódýrt.

Auðvitað ætti ég að fara varlega í að hugsa upphátt um þessa hluti, þar sem ég bý ekki á Íslandi, þessu landi sem hefur gefið mér svo gríðarlega mikið, en ég er bara á hógværan hátt að velta upp hugmyndum sem ég get stutt með reynslu minni í öðrum löndum. Auðvitað er ekkert eitt svar við þeim vandamálum sem ferðamannastraumurinn skapar en eitt lykilatriði er að fá vel menntað og hæfileikaríkt fólk til starfa á þessum vettvangi, og annað er að koma upp regluverki kringum ferðamennskuna sem sér til þess að eðlilegur og verðskuldaður arður skili sér inn í landið, til þjóðarinnar.

Svo er hitt að tímarnir breytast og auðlindir náttúrunnar geta í senn verið síaukið aðdráttarafl fyrir ferðamenn og djúp uppspretta nýsköpunar, hugvits og sköpunarkrafts Íslendinga.“

Ólafur segir að nú séu breyttir tímar hvað varðar áhrifa- og samtakamátt almennings, þegar kemur til að mynda að því að hafa áhrif á ákvarðanatöku eða safna fé til tiltekinna verkefna. „Í stað þess að sitja með hendur í skauti og bíða eftir að löggjöfinn taki við sér og verði skilvirkari gætu félög á borð við Útivist, Ferðafélagið og náttúruverndarsamtökin ráðið sér lobbýista og staðið fyrir hópfjármögnun til að kosta verkefni eins og að keyra í gegn grænt lagaumhverfi sem eykur arðsemina og bætir stjórnina á aðgengi ferðamanna að náttúruauðlinum.

Íslendingar hafa vitaskuld gott orðspor hvað samtakamátt fólksins varðar. Þar horfa margir til Íslands. Umheimurinn horfði til landsins í fjármálakreppunni, það varð enn frægara fyrir mótmæli almennings og frægðin varð enn meiri þegar sumir voru dæmdir í fangelsi. Mögulega vilja Íslendingar nú bara horfa fram á veginn en engu að síður er Ísland enn í dag eina landið þar sem það hefur gerst. Og Ísland er líka eina landið þar sem almenningur fór út á torgin eftir að Panamaskjölin voru opinberuð og forsætisráðherrann sagði af sér. Það er því hefð hér fyrir samtakamætti fjöldans.“

Landið of ódýrt

Ólafur hugsar sig um og bætir svo brosandi við: „Sem listamaður veit ég líka vel að fjöldinn hefur ekki alltaf rétt fyrir sér!

En varðandi fjöldaferðamennskuna tel ég að til séu jákvæðar og góðar leiðir til að leysa vandamálin sem blasa við. Leiðir þar sem allir vinna. Auðvitað vildi ég að allir jarðarbúar gætu upplifað hvað Ísland er fallegt, og þótt ég sé ekki hér að staðaldri er ég gríðarlega stoltur af þessu landi. Mér finnst við bara vera að selja það of ódýrt...“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson