Bieber stormaði af sviði

Justin Bieber var ekki ánægður með tónleikagesti í gær.
Justin Bieber var ekki ánægður með tónleikagesti í gær. AFP

Ungstirnið Justin Bieber stormaði af sviði á tónleikum í Manchester í gær, en honum þótti aðdáendur hans ekki sýna honum nægilega virðingu.

Söngvarinn var að spjalla við tónleikagesti á milli laga, en samkvæmt frétt Daily Mail höfðu þeir mun meiri áhuga á að hlusta á tónlist kappans og hófu því að hrópa á hann. Þetta hugnaðist söngvaranum ekki, en hann fleygði frá sér hljóðnemanum og stormaði af sviðinu.

Söngvarinn sneri þó aftur að nokkrum mínútum liðnum og kláraði tónleikana.

„Ástæðan fyrir því að ég var í svona miklu uppnámi er sú að ég ferðaðist yfir hálfan hnöttinn til að koma hingað, og ég tileinka líf mitt því að koma fram og gleðja fólk. Mér finnst að fólk hafi ekki sýnt mér sömu virðingu, og það er svolítið sárt,“ sagði Bieber um uppátækið.

Frétt mbl.is: Bieber hundleiður á aðdáendum sínum

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson