Heimsbyggðin fór á hliðina þegar fréttist að stjörnuhjónin Angelina Jolie og Brad Pitt væru að skilja eftir tveggja ára hjónaband og 12 ára samband.
Mikið fjölmiðlafár var í kringum stjörnurnar og voru ýmsir aðilar dregnir inn í málið. Þar á meðal var fyrrverandi eiginkona Pitts, Jennifer Aniston.
Vinkona Aniston, grínistinn Chelsea Handler, sagði fáránlegt að draga nafn Aniston inn í málið, enda kæmi hún því ekkert við.
„Það er svo heimskulegt og aumkunarvert að draga nafn hennar inn í þetta. Eins og henni sé ekki sama um þetta. Og henni er sama. Það er fáránlegt að verið sé að blanda henni í þetta. Eins og hún sitja heima hjá sér og hugsi um þetta,“ sagði Handler í viðtali við Grazia Daily.