Tökum á KUWTK slegið á frest

Kim Kardashian dró sig í hlé eftir ránið í París. …
Kim Kardashian dró sig í hlé eftir ránið í París. Skömmu síðar var eiginmaður hennar lagður inn á sjúkrahús. AFP

Fregnir herma að tökum á raunveruleikaþáttunum Keeping Up With the Kardashians hafi verið slegið á frest í kjölfar veikinda Kanye West.

Samkvæmt frétt Daily Mail munu tökur að öllum líkindum ekki hefjast að nýju fyrr en á næsta ári, og hugsanlega síðar.

Heimildamenn tengdir Kardashian-fjölskyldunni halda því fram að þó sé til nóg efni til þess að framleiða þó nokkra þætti, en horfið hefur verið frá því að taka upp efni yfir hátíðirnar.

Þá er talið líklegt að sjúkrahúsvist Kanye West leiki stórt hlutverk í ákvörðuninni, en Kim Kardashian er einnig sögð vera að hugsa sinn gang eftir að hafa verið rænd í París fyrr á árinu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson