„Hver er þessi svikari?“

Söngkonan þótti ekki vera sjálfri sér lík.
Söngkonan þótti ekki vera sjálfri sér lík. Skjáskot Daily Mail

Lady Gaga tróð upp í X-Factor þætti gærkvöldsins, en í kjölfarið sköpuðust heitar umræður á samfélagsmiðlum.

Í stað þess að einbeita sér að sönghæfileikum Gaga, sem flutti nýtt lag sitt „Million Reasons“ veltu margir því fyrir sér hvort hún hefði gengist undir fegrunaraðgerðir á andliti. Sumir gengu jafnvel svo langt að segja söngkonuna óþekkjanlega, eins og fram kemur í frétt Daily Mail.

„Hvernig getur þetta verið Lady Gaga? Andlit hennar er allt öðruvísi. Hver er þessi svikari?“ sagði einn netverji á Twitter.

„Er Lady Gaga búin að fara í nefaðgerð, eða andlitslyftingu, eða hefur hún látið græða á sig nýtt andlit? Held að þetta hafi verið svikahrappur. Hún lítur allt öðruvísi út.“ sagði annar áhorfandi.

„Lady Gaga er komin með nýtt andlit, aftur,“ er haft eftir enn öðrum áhorfanda.

Áhorfendur einblíndu margir hverjir á andlit söngkonunnar, í stað þess …
Áhorfendur einblíndu margir hverjir á andlit söngkonunnar, í stað þess að velta söng hennar fyrir sér. Skjáskot / Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson