Instagram-drottningin aftur á stjá

Selena Gomez alltaf jafnglæsileg.
Selena Gomez alltaf jafnglæsileg. AFP

Ótvíræð drottning samfélagsmiðlanna, Selena Gomez, er nú komin aftur á stjá en Gomez þurfti frá að hverfa til að takast á við þunglyndi og kvíða en söngkonan hefur talað opinskátt um þá baráttu sína.

Gomez geislaði af heilbrigði og hamingju er hún kíkti út með vinum sínum í Hollywood um helgina. Aðdáendur söngkonunnar eru að vonum afar ánægðir að sjá hana aftur bæði á ferðinni sem og á samfélagsmiðlunum en hún tók sér einnig langt hlé frá Instagram á meðan hún tókst á við þunglyndið.

Söngkonan skellti sér út með vinum um helgina en hún …
Söngkonan skellti sér út með vinum um helgina en hún hefur farið huldu höfði um langt skeið. Ljósmynd/Maciel/AKM-Gsi

Sem dæmi um vinsældir Gomez átti hún átta af tíu vinsælustu myndum ársins á Instagram en vinsælasta myndin hennar hlaut tæplega sex milljón „læk“. Geri aðrir betur en fylgjendahópur hennar er nú kominn vel yfir 100 milljónir.

Vinsælasta mynd Instragram allra tíma.
Vinsælasta mynd Instragram allra tíma. Instagram

 

Listann yfir vinsælustu myndirnar má finna hér www.harpersbazaar.com

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson