Paloma Faith orðin móðir

Paloma Faith og unnusti hennar hafa eignast sitt fyrsta barn.
Paloma Faith og unnusti hennar hafa eignast sitt fyrsta barn. Ljósmyndari / LEON NEAL

Söngkonan Paloma Faith og unnusti hennar, Leyman Lahcine, eignuðust sitt fyrsta barn á dögunum.

Söngkonan greindi frá tíðindunum á Instagram-síðu sinni, en hún er að vonum himinlifandi með krílið. Fæðingin gekk þó brösuglega og var barnið að lokum tekið með bráðakeisara.

Ekki hefur verið greint frá hvort um pilt eða stúlku sé að ræða, né heldur hvað barnið heitir.

„Eftir erfiðar hríðir sem enduðu í bráðakeisara er ég búin að eignast mitt fyrsta barn og er ég bæði yfir mig ástfangin og himinlifandi. Hvílíkt ferðalag, en læknar, ljósmæður og hjúkrunarfræðingar voru okkur innan handar. Gæska þeirra og einurð var algerlega einstök og er ég auðmjúk eftir þetta allt saman.“

God bless the NHS!!! #angelsonearth #iamamother

A photo posted by Paloma Faith (@palomafaith) on Dec 5, 2016 at 7:38am PST

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson