Segir Kim og Kanye ekki vera að skilja

Margir velta því nú fyrir sér hvort Kanye West og …
Margir velta því nú fyrir sér hvort Kanye West og Kim Kardashian séu við það að skilja. AFP

Jonathan Cheban, góðvinur Kim Kardashian, segir að orðrómurinn um að stjarnan ætli sér að skilja við eiginmann sinn sé ekki á rökum reistur.

„Ég talaði við Kim og Kanye áðan og allir hafa verið að tala um einhverjar sögusagnir varðandi skilnað. Ég hló bara að þessu. Mér finnst þetta fyndið vegna þess að þetta er svo langt frá því að vera satt,“ sagði Cheban í samtali við E! News.

„Ég veit ekki hvernig fólki detta þessar sögur í hug.“

Því er þó ekki að neita að mikið hefur reynt á samband skötuhjúanna undanfarið, en í haust var Kardashian rænd. Á dögunum var West síðan lagður inn á sjúkrahús, en hann hefur glímt við andleg veikindi.

Jonathan Cheban og Kim Kardashian eru mestu mátar.
Jonathan Cheban og Kim Kardashian eru mestu mátar. Skjáskot E! News
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson