Ótrúleg björgun tveggja ára drengs

Meðfylgjandi myndband sýnir á ótrúlegan hátt hvernig tveggja ára drengur bjargar tvíburabróður sínum undan kommóðu sem datt ofan á hann.

Myndbandið sem tekið var upp á eftirlitsmyndavél í herbergi drengjanna sýnir þá príla á kommóðunni með þeim afleiðingum að hún fellur fram fyrir sig og ofan á annan drenginn. Hinn drengurinn er ekki að átta sig á því í fyrstu hvað gerðist en þegar hann áttar sig á því er hann fljótur til að aðstoða bróður sinn og kemur honum á undraverðan hátt undan kommóðunni.

Foreldrar drengjanna voru á neðri hæð hússins þegar slysið átti sér stað og voru skiljanlega í áfalli þegar þau áttuðu sig á því hvað hafði gerst.

Mikil mildi þykir að drengurinn hafi ekki slasast illa en höggið er töluvert og leiða má líkur að því að kommóðan vegi einverja tugi kílóa.

Sambærileg slys hafa orðið hér á landi og eru foreldrar hvattir til að festa kommóður ætíð upp við vegg en flestar kommóður eru seldar með þess háttar festingum.

Sjá frétt mbl.is: Gefa festingar í kjölfar dauðaslysa.

Hér sjást foreldrar drengjanna, Kayli Oliverson Shoff og Ricky Shoff …
Hér sjást foreldrar drengjanna, Kayli Oliverson Shoff og Ricky Shoff ásamt öðrum drengnum. Facebook
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir