Er George Clooney að verða pabbi?

Hjónin virka alsæl að sjá.
Hjónin virka alsæl að sjá.

Miklar vangaveltur áttu sér stað í morgunþættinum Good Morning Britain í morgun um það hvort að hjónakornin George Clooney og Amal Clooney eigi nú von á sínu fyrsta barni.

Meðal þess sem var farið yfir í þættinum voru myndir af fræga fólkinu síðustu daga. Komu þar fyrir myndir af hjónunum en á þeim þóttu stjórnendum morgunþáttarins Amal líta út fyrir að vera komin stutt á leið. Var einnig bent á þá staðreynd að mjög lítið væri búið að fara fyrir þeim undanfarna tvo mánuði.

Amal er þrjátíu og átta ára gömul og barnlaus og Clooney er fimmtíu og fimm ára og barnlaus og væri því um fyrsta barn þeirra að ræða en þau eru búin að vera gift í tvö ár.

Tíminn einn verður svo að leiða það í ljós hvort um raunverulega meðgöngu er að ræða eða bara vont kjólaval.

Amal sem er vön að vera klædd mjög þröngu var …
Amal sem er vön að vera klædd mjög þröngu var klædd víðum blómakjól.
Það er ekki hægt að neita því að Amal gæti …
Það er ekki hægt að neita því að Amal gæti vel verið komin stutt á leið.



 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir