Hemsworth fagnaði með litlu systur Miley

Leikaraparið Miley Cyrus og Liam Hemsworth. Mynd úr safni.
Leikaraparið Miley Cyrus og Liam Hemsworth. Mynd úr safni. mbl.is/Cover Media

Leikarinn Liam Hemsworth fagnaði 27 ára afmæli sínu á dögunum. Yngri systir Miley Cyrus, unnustu Hemsworths, varð 17 ára aðeins örfáum dögum fyrir afmælisdag Hemsworths svo þau ákváðu að slá saman í eina sameiginlega afmælisveislu.

Noah Cyrus, yngri systir Miley Cyrus.
Noah Cyrus, yngri systir Miley Cyrus. Skjáskot/ET



Frá þessu greinir E-Online en þar kemur fram að Miley hafi skipulagt veisluna fyrir kærastann, systur sína og vin sinn Wayne Coyne sem einnig á afmæli í janúar. Ekkert var til sparað að því er E-Online greinir frá, m.a. voru allir gestir leystir út með gjafapokum.

Afmæliskakan var skreytt með stöfunum N.W.L. sem er tilvísun í hip-hop hljómsveitina N.W.A. sem var upp á sitt besta á seinni hluta níunda áratugar síðustu aldar. Voru stafirnir upphafsstafir afmælisbarnanna þriggja.

Frétt E-Online

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson