Heimtar að troða upp fyrir Trump

Azaelia Banks getur vel hugsað sér að koma fram á …
Azaelia Banks getur vel hugsað sér að koma fram á innsetningarathöfninni. AFP

Brösuglega hefur gengið að fá tónlistarmenn til að koma fram á innsetningarathöfn Donald Trump, sem fram fer á morgun. Hver tónlistarmaðurinn á fætur öðrum hefur greint frá því að þeir hafi ekki nokkurn minnsta áhuga á því að spila fyrir Trump, og má þar nefna Elton John, Garth Brooks og Céline Dion.

Ekki eru þó allir á sama máli, en rapparinn Azealia Banks er ákaflega spennt fyrir því að koma fram á innsetningarathöfninni, eins og fram kemur á Facebook-síðu hennar.

„Ég sá listann yfir tónlistarmennina sem munu koma fram á innsetningarathöfninni, og það gerði mig afar dapra. Þetta er magnað augnablik í sögunni og það ætti fagna því með „stæl“ Ég myndi endilega vilja koma fram á athöfninni.“

Banks birti þessa færslu á Facebook-síðu sinni.
Banks birti þessa færslu á Facebook-síðu sinni. Skjáskot / Facebook

Banks er afar umdeild, en hún hefur mikið verið á milli tannanna á fólki fyrir undarlega hegðun upp á síðkastið. Þá birti hún á dögunum myndskeið frá herbergi sem hún notar til að slátra kjúklingum, en hún segist iðka galdra og dýrafórnirnar séu hluti af því.

Þá lenti hún einnig upp á kant við leikarann Russell Crowe á síðasta ári, en hann henti henni öfugri út úr matarboði þar sem hún hafði í hótunum við veislugesti.

Frétt mbl.is: Þeim fjölgar sem sniðganga innsetningu Trump

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson