Langar að eiga bústin börn

Sheeran er farinn að huga að framtíðinni.
Sheeran er farinn að huga að framtíðinni. AFP

Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran segist vera tilbúinn til að fjölga mannkyninu, en helst vill hann eiga búlduleit og bústin börn eins og fram kemur í frétt Daily Mail.

„Mig langaði að eignast börn á síðasta ári. Ég er tilbúinn, drífum í þessu,“ sagði söngvarinn í nýlegu útvarpsviðtali.

„Mig langar í lítil og bústin börn sem brölta um hljómsveitarrútuna,“ bætti söngvarinn síðan við í gamansömum tón.

Söngvarinn greindi einnig frá því að þegar kæmi að því að hann myndi stofna fjölskyldu myndi hann taka sér frí frá tónlistinni.

„Bruce Springsteen tók sér langt frí þegar krakkarnir hans fóru í skóla, og ég held að ég myndi gera slíkt hið sama.“

Hver veit nema söngvarinn taki fljótlega upp á því að fjölga mannkyninu, en hann er yfir sig ástfanginn af kærustunni sinni, Cherry Seaborn.

Frétt mbl.is: Missti 22 kíló með hjálp kærustunnar

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson