Disick kominn með dömu upp á arminn

Disick og ónefnda konan létu fara vel um sig.
Disick og ónefnda konan létu fara vel um sig. Skjáskot / Daily Mail

Scott Disick, barnsfaðir og fyrrverandi unnusti Kourtney Kardashian, er nýkominn heim úr fríi frá Costa Rica, þar sem hann slappaði af með fjölskyldunni.

Disick virtist njóta frísins vel, þar sem hann sleikti sólina með Kourtney, systrum hennar og móður. Skötuhjúin, sem eiga þrjú börn saman, voru talin vera farin að stinga saman nefjum á nýjan leik en þau slitu sambandi sínu árið 2015 eftir að upp komst að Disick hefði haldið framhjá spúsu sinni.

Frétt mbl.is: Eru þau byrjuð aftur saman?

Disick var þó ekki fyrr kominn heim frá Costa Rica en hann var búin að koma sér kyrfilega fyrir á ströndinni, með unga konu upp á arminn.

Eins og sjá má í frétt Daily Mail fór vel á með þeim, en hin ónefnda kona kúrði í hálsakoti raunveruleikastjörnunnar.

Vel virtist fara á með Disick og hinni ljóshærðu konu.
Vel virtist fara á með Disick og hinni ljóshærðu konu. Skjáskot / Daily Mail
Disick var nýkominn heim úr fríi, þar sem hann slappaði …
Disick var nýkominn heim úr fríi, þar sem hann slappaði af með barnsmóður sinni og fjölskyldu hennar. Skjáskot / Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson