Viðurkenning fyrir gott starf

Frá myndlistarsýningunni Rúllandi snjóbolti á Djúpavogi. Hún er ein af …
Frá myndlistarsýningunni Rúllandi snjóbolti á Djúpavogi. Hún er ein af sex verkefnum á Eyrarrósarlistanum 2017.

Sex ólík menningarverkefni á landsbyggðinni hafa verið valin á Eyrarrósarlistann 2017 og eiga þar með möguleika á að hljóta Eyrarrósina í ár. Það eru Alþýðuhúsið á Siglufirði, Eistnaflug í Neskaupstað, List í ljósi á Seyðisfirði, Nes – Listamiðstöð á Skagaströnd, Rúllandi snjóbolti á Djúpavogi, og Vesturfarasetrið á Hofsósi. Að þessu sinni bárust alls 37 umsóknir um Eyrarrósina, hvaðanæva af landinu.

Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Hún beinir sjónum að og hvetur til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Að verðlaununum standa Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík. Forsetafrúin Eliza Reid, nýr verndari Eyrarrósarinnar, mun afhenda verðlaunin 16. febrúar næstkomandi við athöfn í Verksmiðjunni á Hjalteyri, sem er handhafi Eyrarrósarinnar frá síðasta ári.

Verkefnið sem hlýtur Eyrarrósina fær tvær milljónir króna í verðlaun en tvö önnur verkefni á listanum hljóta 500 þúsund krónur.

Glæsileg verkefni

Vigdís Jakobsdóttir, nýr listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík sem heldur utan um Eyrarrósarverkefnið, segir að umsóknir um Eyrarrósina hafi sjaldan verið fleiri en hún verður nú afhent í þrettánda sinn. Áhuginn fyrir verkefninu sé því mikill. „Það er mjög mikið af glæsilegum lista- og menningarverkefnum á landsbyggðinni, það er ein ástæðan fyrir fjölda umsókna. Önnur ástæða er að Eyrarrósin er mjög gott tækifæri til að vekja athygli á þessum góðu verkefnum. Þá hafa peningaverðlaunin sitt að segja,“ segir Vigdís og bætir við að upphæð verðlaunanna hafi nú verið hækkuð, upp í tvær milljónir, og það muni um minna í menningunni, úti á landi sem annars staðar.

Þá segir Vigdís umsóknirnar afar fjölbreytilegar. „Þetta eru söfn, setur og sprotaverkefni og það var erfitt að velja úr þeim, meðal annars sökum þess hversu ólík þau eru. En við höfum raðað sex verkefnum á listann og hann er hugsaður til þess að geta endurspeglað þessa breidd.“

Vigdís segir sum verkefnin tengdari ferðaþjónustu en önnur en í valinu á listann hafi ekki verið lögð áhersla á það heldur hvernig verkefnin næri listumhverfið og menninguna á hverju svæði fyrir sig.

Vekur athygli á verkefnum

Alþekkt er að metnaðarfullir aðstandendur menningarverkefna á fámennari stöðum gefast oft upp þegar stuðningurinn er lítill heima fyrir og ekki næst að koma fersku blóði í starfsemina. Telur Vigdís að athygli sem val á lista Eyrarrósarinnar, eða verðlaunin sjálf veiti, gefi aðstandendum aukinn kraft til að halda starfseminni gangandi?

„Ég veit að það er staðreynd að það að komast á listann og hljóta Eyrarrósina vekur athygli á verkefnunum. Það hjálpar fólki líka í framhaldinu við styrkumsóknir og slíkt. Við erum mjög stolt af því að öll verkefnin sem hafa fengið Eyrarrósina í gegnum tíðina, fyrir utan eitt sem var tímabundið, Áhöfnin á Húna, eru starfandi enn í dag. Við leggjum áherslu á að verkefnin sem fá verðlaunin séu þegar búin að sanna sig og séu stöndug. Þetta er viðurkenning fyrir gott starf, oft mikið hugsjónastarf sem hefur kostað mikla seiglu að halda úti.“

Vigdís er listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík. Hvernig fer það saman að undirbúa hina hefðbundnu hátíð með áherslu á höfuðborgarsvæðið og skoða og velja úr verkefnum á landsbyggðinni?

„Mér finnst þetta fara afskaplega vel saman. Reykjavík er höfuðborg landsins og Listahátíð í Reykjavík er nokkurs konar móðir hátíðanna á Íslandi. Þetta gefur mér sjálfri líka ómetanlegt tækifæri til að fá innsýn í það sem er að gerast í menningunni um land allt. Að lesa allar 37 umsóknirnar var ótrúlega lærdómsríkt. Að sjá metnaðinn, fjölbreytnina og allt þetta hugsjónafólk sem keyrir áfram menningarverkefni á landsbyggðinni af metnaði og brennandi áhuga við oft mjög krefjandi aðstæður hvað varðar fjármagn og aðstöðu.

Eyrarrósarlistinn birtir þverskurð af því hvað fjölbreytileikinn er mikill. Einhver ótrúleg framsýni og stórhugur einkennir þessi verkefni öll,“ segir hún.

Alþýðuhúsið á Siglufirði

Í Alþýðuhúsinu á Siglufirði er rekið metnaðarfullt menningarstarf allan ársins hring, með áherslu á myndlist, undir stjórn Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur. Þar eru einnig með jöfnu millibili haldnir tónleikar, fyrirlestrar og menningarviðburðir af ýmsum toga. Reglulega er listamönnum boðið að dvelja þar í skemmri tíma við eigin vinnu. Fastir viðburðir á dagskrá Alþýðuhússins eru til dæmis menningardagur barna, gjörningahátíð, sunnudagskaffi með skapandi fólki, smiðjan Reitir og fleira. Í ár fagnar Alþýðuhúsið fimm ára afmæli og heldur upp á það með veglegri afmælisdagskrá næsta sumar.

Eistnaflug, Neskaupstað

Eistnaflug er rótgróin tónlistarhátíð sem haldin er í Neskaupstað aðra helgina í júlí ár hvert. Eistnaflug er eina tónlistahátíðin hér á landi þar sem höfuðáhersla er lögð á þungarokk og aðrar jaðartónlistarstefnur. Margar af þekktustu þungarokkssveitum heims hafa komið fram á hátíðinni en hátíðin styður líka við bakið á ungum og upprennandi hljómsveitum og hefur rutt veginn fyrir íslenskar sveitir á erlendum útgáfu- og tónleikamarkaði. Skipuleggjendur eru stoltir af góðu orðspori Eistnaflugs sem „rokkhátíðar sem fer fram í bróðerni og samstöðu“. Um 50 rokksveitir munu koma fram á Eistnaflugi 2017.

List í ljósi, Seyðisfirði

List í ljósi er í vetur haldin á Seyðisfirði í annað sinn, en henni er ætlað að verða að árlegum viðburði. Rík áhersla er lögð á samfélagsleg áhrif hátíðarinnar sem fer fram utandyra. Geta allir, ungir sem aldnir, tekið þátt í hátíðinni með einum eða öðrum hætti. Á meðan á hátíðinni stendur er Seyðisfjarðarkaupstað umbreytt með ljósadýrð og spennandi listaverkum. Áhorfendur, sem um leið eru þátttakendur, upplifa á magnaðan hátt ýmis listaverk, allt frá innsetningum og vídeóverkum til stærri ljósaskúlptúra. Innlendir og erlendir listamenn taka þátt í hátíðinni sem bókstaflega lýsir upp Seyðisfjörð. Markmið hátíðarinnar er að styðja við menningarlíf Austurlands á lágönn og fagna komu sólar eftir þrjá langa og sólarlausa mánuði.

Rúllandi snjóbolti, Djúpavogi

Í gömlu Bræðslunni á Djúpavogi hefur alþjóðlega samtímalistasýningin Rúllandi snjóbolti verið haldin árlega frá árinu 2014 og styrkir stöðu sína með hverju ári. Um er að ræða eftirtektarvert og afar metnaðarfullt samstarfsverkefni Djúpavogshrepps og CEAC (Chinese European Art Center). Á sýningunni síðastliðið sumar áttu 32 íslenskir og erlendir listamenn verk á sýningunni og þannig er um að ræða eina stærstu samtímalistasýningu ársins hérlendis. Aðgangur á sýninguna var ókeypis og nutu bæði Austfirðingar og ferðamenn góðs af.

Nes, Skagaströnd

Nes – listamiðstöð á Skagaströnd var stofnuð árið 2008 og hefur verið rekin þar allar götur síðan. Fjölmargir listamenn hafa dvalið á Skagaströnd frá opnun listamiðstöðvarinnar en þar er rými fyrir allt að 12 til15 listamenn í einu. Flestir kjósa að dvelja þar einn til tvo mánuði í senn.

Mánaðarlegir viðburðir eru í listamiðstöðinni með virkri þátttöku heimamanna. Listamiðstöðin Nes hefur haft áhrif á nærsamfélag sitt og gefið íbúum á öllum aldri og gestum tækifæri til að kynnast fjölbreyttri listsköpun, bæði sem áhorfendur og sem virkir þátttakendur.

Vesturfarasetrið, Hofsósi

Vesturfarasetrið hefur verið starfrækt frá 1996 og er megintilgangur setursins að viðhalda og efla tengsl fólks af íslenskum ættum sem búsett er í Kanada og Bandaríkjunum og vill leita uppruna síns á Íslandi. Jafnframt aðstoðar Vesturfarasetrið Íslendinga í leit sinni að ættingjum í Vesturheimi. Markmið Vesturfarasetursins er að efla enn frekar áhuga fólks af íslenskum ættum á uppruna sínum og frændgarði á Íslandi. Fjölmargar sýningar hafa verið settar upp í húsnæði Vesturfarasetursins á Hofsósi sem eru allar til þessa fallnar að varpa ljósi á söguna og minnast þeirra fjölmörgu sem yfirgáfu Ísland í leit að betra lífi á seinni hluta 19. aldar og í upphafi þeirra 20.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson