Ronaldo reynir fyrir sér í leiklistinni

Ronaldo er sagður ætla að reyna fyrir sér í leiklistinni.
Ronaldo er sagður ætla að reyna fyrir sér í leiklistinni. AFP

Fótboltakappinn knái, Cristiano Ronaldo, hefur lengi lýst yfir áhuga sínum á því að færa út kvíarnar og reyna fyrir sér í leiklistinni.

Samkvæmt frétt Sky mun kappinn taka að sér hlutverk í nýjum sjónvarpsþáttum sem fjalla um sýrlenska flóttafjölskyldu. Fregnir herma að tökur hefjist í apríl næstkomandi og fari að mestu fram í Tyrklandi.

Ronaldo verður síður en svo eina stjarnan sem bregður fyrir í þáttunum, en í frétt Sky segir að Angelina Jolie muni einnig taka að sér hlutverk í þeim.

„Tökur hefjast fyrstu vikuna í apríl, en þættirnir fjalla um hlutskipti sýrlenskrar fjölskyldu á flótta. Fjölmargir leikarar, hvaðanæva úr heiminum, koma við sögu svo sem Cristiano Ronaldo og Angelina Jolie,“ er haft eftir leikstjóra þáttanna, Eyup Dirlik.

Angelina Jolie er einnig sögð munu leika í þáttunum.
Angelina Jolie er einnig sögð munu leika í þáttunum. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson