Svölustu stelpu í heimi strítt í æsku

Leikkonan segist hafa upplifað talsverða stéttaskiptingu í æsku.
Leikkonan segist hafa upplifað talsverða stéttaskiptingu í æsku. AFP

Chloë Sevigny, sem gjarnan er kölluð svalasta stelpa í heimi, greinir frá uppvaxtarárum sínum í nýju viðtali við New York Times. Leikkonan ólst upp í bænum Darien, flestir íbúar bæjarins eru af góðum efnum.

Fjölskylda leikkonunnar hafði þó ekki mikið á milli handanna og segir Sevigny að henni hafi gjarnan verið strítt vegna þessa. Þá segir hún að umhverfið hafi einnig verið sérlega íhaldssamt.

„Foreldrar okkar gáfu okkur ekki BMW-bíla. Við ólumst ekki upp með jafnmikil forréttindi og þekktist í umhverfi okkar.“

Spurð að því hvort hún hafi fundið fyrir stéttaskiptingu segir leikkonan svo vera.

„Já, maður fékk ekki að gleyma henni. Það var mikið um stríðni, foreldrar mínir keyrðu til dæmis um á Hondu og það var mikið gert grín að því,“ segir leikkonan, sem segir uppvaxtarárin þó hafa verið góð.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson