Hljómsveitakeppnin Músíktilraunir hófst í Hörpu á sunnudagskvöld og heldur áfram í kvöld og verður fram haldið næstu daga. Á sunnudag kepptu átta hljómsveitir um sæti í úrslitum og í kvöld keppa átta til.
Keppnin hefst kl. 19.30 hvert kvöld. Tvær hljómsveitir komast í úrslit hvert kvöld, eina velja áheyrendur og eina velur dómnefnd. Úrslitin verða 1. apríl.
Hljómsveitirnar sem hreppa efstu sæti keppninnar hljóta hljóðverstíma og ýmislegt annað góss í verðlaun, einnig fá frambærilegir hljóðfæraleikarar viðurkenningar.