Melódískur og fjölhæfur

Atli Örvarsson tónskáld með auglýsingu fyrir tónleikana í Hofi í …
Atli Örvarsson tónskáld með auglýsingu fyrir tónleikana í Hofi í bakgrunni. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Kvikmyndatónskáldið Atli Örvarsson stjórnar flutningi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á eigin tónverkum í Hofi á Akureyri á sunnudaginn kl. 20. Atli á að baki um 18 ára feril sem kvikmynda- og sjónvarpsþáttatónskáld, starfaði lengst af í Los Angeles en flutti í fyrra aftur til síns gamla heimabæjar, Akureyrar.

Á tónleikunum mun Kammerkór Norðurlands koma fram með sinfóníuhljómsveitinni, einnig söngkonan Þórhildur Örvarsdóttir, systir Atla, og einleikarar verða hin enska Caroline Dale á selló og Greta Salóme á fiðlu. Atli hefur samið tónlist við yfir 40 kvikmyndir og hundruð sjónvarpsþátta og má af þeim nefna kvikmyndirnar Stuart Little, Hansel & Gretel: Witch Hunters, The Eagle, Vantage Point, The Perfect Guy og Hrúta og sjónvarpsþætti NBC-sjónvarpsstöðvarinnar sem kenndir eru við Chicago-borg, m.a. Chicago Fire sem sýndir eru á RÚV. Atli var á tímabili í teymi eins virtasta kvikmyndatónskálds heims, Hans Zimmer, og kom að gerð tónlistar við kvikmyndirnar The Holiday, Pirates of the Caribbean, The Simpsons Movie, Angels & Demons og Man of Steel.

Með tónlistina í blóðinu

„Ég byrjaði í tónlistarskóla þegar ég var fimm, sex ára. Faðir minn var tónlistarmaður, Örvar Kristjánsson harmonikkuleikari, móðir mín syngur í kórum og afabróðir minn er kórstjóri á Akureyri þannig að þetta er svolítið í blóðinu,“ segir Atli þegar hann er spurður að því hvenær áhugi hans á tónlist hafi kviknað. „Ég man ekki nákvæmlega hvernig það vildi til en allt í einu var ég kominn í tónlistarskóla og hef verið í músík upp frá því,“ segir hann kíminn. Í sínum fyrstu tónlistartímum hafi hann fengið að leika á orgel hjá afabróður sínum, Áskeli Jónssyni, fært sig þaðan yfir á blokkflautu og endað með því að leika á trompet fram á unglingsár. „Þá ákvað ég að spila meira rokk og ról,“ segir hann.

Rokkarinn Atli lék með mörgum hljómsveitum á sínum tíma, var fyrst í Stuðkompaníinu með bróður sínum Karli, síðan lá leiðin í Todmobile sem hann lék með í stuttan tíma, þá Sálina hans Jóns míns og loks SSSól. Atli segist hafa verið byrjaður í námi þegar hann lék með SSSól en hann nam tónsmíðar í Berklee College of Music í Boston í Bandaríkjunum. „Ég var ekkert ákveðinn í að fara í tónsmíðanám þegar ég fór þangað, ég var svolítið leitandi, jafnvel að spá í að læra djasspíanóleik en svo fékk ég eiginlega vitrun þegar ég var í náminu. Það er kröftug kvikmyndatónlistardeild í Berklee og ég ákvað að prófa einn kynningarkúrs þar og fann fjölina mína,“ segir Atli. Þessi samruni myndar og tónlistar hafi heillað hann.

–Þetta er eftirsóknarvert starf, að semja tónlist við kvikmyndir og sjónvarpsþætti í Bandaríkjunum. Hvernig tókst þér að komast inn um þær dyr?

„Ég sendi verk í tónsmíðasamkeppni þegar ég var um það bil að klára námið, komst í þriggja manna úrtak og fór í læri hjá lærimeistara í L.A. sem heitir Mike Post. Eins og í öllum öðrum greinum og brönsum snýst þetta mikið um hvern maður þekkir. Auðvitað kom tónlistin mér inn en svo var það bara að fara inn um réttu dyrnar og kynnast rétta fólkinu.“

–Og svo stækka verkefnin eftir því sem á líður, þ.e. ef menn eru ánægðir með það sem þú gerir?

„Jú, þau gera það náttúrlega. Þetta er langt ferli og mjög margir um hituna. Maður er óþolinmóður þegar maður er ungur en lærir seinna að það er ástæða fyrir því að þetta þarf að taka langan tíma. Það tekur langan tíma að verða sæmilega góður í að tengja tónlist við mynd og kalla fram réttu tilfinningarnar og stemninguna,“ svarar Atli.

–Hvað einkennir þig sem kvikmyndatónskáld?

„Það er kannski fjölhæfni að vissu leyti og ég er frekar melódískur tónsmiður. Það er minn útgangspunktur oftast nær eða alla vega þar sem við á.“

Víða komið við

–Var ekkert erfitt að velja verk á efnisskrá tónleikanna í Hofi? Þú hlýtur að hafa samið þau ansi mörg á 18 árum...

„Jú, jú, það var snúið en gaman líka, áhugavert að fara í gegnum katalóginn og lærdómsríkt en þegar allt kemur til alls þarf maður að velja verk sem spilast vel á tónleikum, það er ekki það sama og að semja „score“ fyrir kvikmynd,“ segir Atli. Stef og tónlist við mikilvæg augnablik úr völdum kvikmyndum verði því á efnisskránni, tónlist úr ólíkum kvikmyndum á borð við Hrúta og Mortal Instruments. „Svo flytjum við tónlist úr tveimur kvikmyndum sem ég tók upp hér á Akureyri með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, amerískri mynd sem heitir The Perfect Guy og Fyrir framan annað fólk,“ segir Atli og nefnir einnig The Eagle. „Það er komið víða við, tónlistarlega er þetta allt frá stórum, epískum kór- og hljómsveitarverkum yfir í þjóðlagatónlist.“

Skemmtilegir Hrútar og frábær Zimmer

Atli er beðinn um að líta yfir ferilinn og nefna verkefni sem honum hafi þótt sérstaklega skemmtileg og gefandi. „Það var æðislegt að vera hluti af Hrúta-ævintýrinu. Það var mjög óvænt og skemmtilegt og í rauninni fyrsta verkefnið sem ég gerði hér heima. En það má nefna margt, The Eagle var mjög skemmtilegt verkefni, þá fór ég til Skotlands og vann með skoskum tónlistarmönnum sem hafa sérhæft sig í því að endurgera forna, skoska tónlist, var í kirkju í Edinborg með gömlum körlum sem hafa verið að spá í bronsaldarlúðra alla sína ævi,“ segir Atli sposkur. Góðu stundirnar séu margar, m.a. þegar hann stjórnaði stórri hljómsveit í hljóðverinu Abbey Road. „Svo var frábært að fá að vinna með Hans Zimmer, hann er snillingur og gaman að vera innan um svoleiðis fólk.“

Atli hefur nóg að gera á Akureyri, er þessa dagana að semja tónlist við Hollywood-myndina The Hitman's Bodyguard sem Patrick Hughes leikstýrir og er með Ryan Reynolds og Samuel L. Jackson í aðalhlutverkum. „Þetta er svona spennu-aksjón-kómedía,“ segir Atli um myndina og að þó hún sé poppkornsræma vilji leikstjórinn hafa sál í henni. „Ég held að við séum að gera skemmtilega hluti þarna,“ segir Atli um verkefnið en leikstjórinn heimsótti hann norður fyrir nokkrum vikum. „Við vorum að taka upp slatta af trommum og hinu og þessu, söng og munnhörpu og guð má vita hvað,“ segir Atli að lokum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson