Styttist í settan dag hjá Beyoncé og Clooney

George Clooney og Amal Clooney eiga von á tvíburum.
George Clooney og Amal Clooney eiga von á tvíburum. mbl.is/AFP

Beyoncé birti nýja mynd af sér á Instagram og miðað við stærðina á óléttukúlunni er ekki annað að sjá en að það sé farið að styttast í settan dag. Á sama tíma var George Clooney bannað að fara á sína verðlaunaafhendingu vegna þess að stóri dagurinn hjá honum og Amal Clooney nálgast. 

George og Amal Clooney eiga von á tvíburum á næstunni rétt eins og tónlistarfólkið Beyoncé og Jay Z. Daily Mail greindi frá því að Amal hafði bannað leikaranum að fara á athöfn þar sem mannréttindaverðlaun voru afhent en leikarinn er einn stofnandi verðlaunanna. 

„Ég vildi að ég hefði verið þarna en ef ég hefði komið og konan mín ætti tvíburana á meðan ég væri í burtu kæmist ég aldrei aftur heim,“ sagði hann í myndabandsskilaboðum á verðlaunaafhendingunni. 

😁🇺🇸

A post shared by Beyoncé (@beyonce) on May 29, 2017 at 11:43pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson