Safna fyrir fjölnota dömubindum

Malavíski rapparinn og He for She-leiðtoginn Tay Grin verður á …
Malavíski rapparinn og He for She-leiðtoginn Tay Grin verður á Kex í kvöld. mbl/ATP

Ungmennaráð UN Women á Íslandi stendur fyrir styrktartónleikum á Kex Hostel í kvöld þar sem He for She-leiðtoginn og malavíski rapparinn Tay Grin kemur fram ásamt söngkonunni Hildi og rapparanum Tiny.

Með því að mæta á tónleikana gefst fólki kostur á að styrkja kaup á fjölnota dömubindum fyrir malavískar skólastúlkur en þær hafa takmarkaðan aðgang að dömubindum og öðrum hreinlætisvörum. Algengt er að stúlkur haldi sig heima við þegar þær eru á blæðingum og missa þær þess vegna eina viku úr skóla mánaðarlega sem leiðir oft til brottfalls úr námi. 

Tónlistargestum verður veitt meiri innsýn í líf stúlkna í Malaví og þær áskoranir sem þær standa frammi fyrir. 

Ekkert kostar inn á tónleikana en gestum er boðið að styrkja málefnið um 1.000 krónur sem jafngildir tveimur pökkum af dömubindum. 

Nánari upplýsingar um tónleikana má finna hér.

Tay Grin hefur unnið mikið með He for She-herferðina.
Tay Grin hefur unnið mikið með He for She-herferðina. mbl/ATP
Söngkonan Hildur verður á svæðinu.
Söngkonan Hildur verður á svæðinu. mbl/ATP
Tiny úr Quarashi mun einnig skemmta tónleikagestum.
Tiny úr Quarashi mun einnig skemmta tónleikagestum. mbl/Árni Torfason
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson