80 kg ofurfyrirsæta úr sílíkoni

Þriggja milljóna króna skúlptúr af Moss hefur verið afhjúpaður í …
Þriggja milljóna króna skúlptúr af Moss hefur verið afhjúpaður í London.

Mjög raunverulegur skúlptúr af ofurfyrirsætunni Kate Moss hefur verið afhjúpaður í sýningarsal í London en skúlptúrinn kostar rúmlega þrjár milljónir íslenskra króna. 

Skúlptúrinn sýnir Moss allsnakta og handalausa og ber hann titilinn MILF sem stendur fyrir móðir sem ég vil stunda kynlíf með.

Myndlistarmaðurinn Edgar Askelovic, 29 ára, er höfundur skúlptúrsins og tók hann fjóra mánuði að klára hann. Askelovic notaðist við ljósmyndir af Moss til að búa til verkið sem hann mótaði með sílíkoni. 

Skúlptúrinn er um 80 kílógrömm en til gamans má geta að fyrisætan sjálf er aðeins tæplega 55 kílógrömm.

Askelovic hefur einnig gert raunverulega skúlptúra af Andy Warhol, Amy Winehouse og Elísabetu Englandsdrottningu.


   

Skúlptúrinn kallast móðir sem ég vil sofa hjá (e. MILF).
Skúlptúrinn kallast móðir sem ég vil sofa hjá (e. MILF). Skjáskot/DailyMail
Fyrirsætan Kate Moss.
Fyrirsætan Kate Moss. Ljósmynd/Playboy
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson