Segir McGregor hagnast á þjáningu hennar

Conor McGregor og Floyd Mayweather.
Conor McGregor og Floyd Mayweather. AFP

Fyrrverandi kærasta Floyd Mayweather, Josie Harris, er að sögn TMZ bálreið út í Connor McGregor þar sem hún segir hann vera að hagnast á þjáningu hennar.

Bardagamaðurinn McGregor og hnefaleikamaðurinn Mayweather mætast í einum stærsta hnefaleikabardaga sögunnar 26. ágúst í Las Vegas og hafa þeir verið að tala mikið niður til hvor annars undanfarið en um daginn minnti McGregor fólk á heimilisofbeldi Mayweathers.

Árið 2012 sat Mayweather inni í 90 daga fyrir heimilisofbeldi gagnvart Harris en hann átti að hafa ráðist á hana eftir að hann frétti að hún hefði sofið hjá körfuboltaspilaranum CJ Watson. McGregor hæddist að þessu opinberlega þegar hann lét mynda sig í liðstreyju Watson um daginn.

Harris fannst atvikið alls ekki fyndið og segir McGregor vera að notfæra sér þetta hræðilega atvik til þess eins að auglýsa bardaga sinn. 

„Þetta uppátæki sýnir ekki aðeins ónæmi gagnvart andlegri vellíðan og friðhelgi einkalífs fórnalambsins heldur líka vanrækslu gagnvart líkamlegu og andlegu áverkunum sem hafa áhrif á öll fórnalömb heimilisofbeldis,“ sagði lögfræðingur Harris, Dan Friedlander. 

Floyd Mayweather og Josie Harris þegar allt lék í lyndi.
Floyd Mayweather og Josie Harris þegar allt lék í lyndi. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson