Vill að Trump verði krýndur konungur

Jimmy Kimmel er einn af vinsælustu kvöldþáttastjórnendum Bandaríkjanna.
Jimmy Kimmel er einn af vinsælustu kvöldþáttastjórnendum Bandaríkjanna. AFP

Bandarískir kvöldþáttastjórnendur hafa mikið gagnrýnt forseta Bandaríkjanna og þá sérstaklega í þessari viku þegar hann neitaði nokkrum sinnum að fordæma ofbeldishneigðu þjóðernissinnana sem mótmæltu í Virginíu.

Kvöldþáttatjórnandinn Jimmy Kimmel hefur mikið gagnrýnt Trump en í gær sagði hann frá áætlun sinni til þess að losa Bandaríkjamenn endanlega við forsetann. 

Í gærkvöldi byrjaði Jimmy Kimmel á því að hvetja alla stuðningsmenn Trumps að yfirgefa hann fyrir fullt og allt. 

„Hugsið um þetta eins og þið hafið sett Star Wars veggfóður í eldhúsið ykkar: 'allt í lagi, ég gleymdi mér aðeins. Ég varð alltof spenntur, ég gerði mistök, og nú þarf þetta að fara',“ sagði Kimmel er hann ávarpaði sérstaklega stuðningsmenn Trumps. 

Eftir þessa uppástungu sagði hann frá ráðagerðinni sinni sem hann vonaðist til að allir gætu tekið undir. 

„England er með drottningu. Hún býr í höll, allir verða rosa spenntir þegar hún mætir, en hún hefur engin völd. Á morgnanna setja þeir kórónu á höfuð hennar, hún bara stendur og vinkar, og svo fer hún að sofa - ekkert annað. Drottningin gæti verið alveg kolrugluð en það myndi ekki breyta neinu. Hún væri ennþá drottning, allt væri í góði lagi ennþá. Þetta er það sem við verðum að gera við Trump. Við þurfum að læsa hann inn í kastala eitthvers staðar í Florida að eilífu,“ sagði Kimmel um áætlun sína. 

 



Kimmel segir Elísabet Englandsdrottning ekki með nein völd þar sem …
Kimmel segir Elísabet Englandsdrottning ekki með nein völd þar sem hún gerir ekkert nema að brosa og veifa. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson