Knúsar kærastann er hann spilar tölvuleik

Selena Gomez og The Weeknd líta út fyrir að vera …
Selena Gomez og The Weeknd líta út fyrir að vera mjög hamingjusöm. AFP

Tónlistarmaðurinn the Weeknd birti mynd af sér með söngkonunni Selenu Gomez í gærkvöldi þar sem þau áttu rólegt sunnudagskvöld heima hjá sér. 

Á myndinni situr Gomez í kjöltu hans þar sem hann situr í sófanum og spilar tölvuleik. Undir myndina skrifaði söngvarinn svo „home“ eða heima. 

Í bakgrunni sést í tvo diska fulla af pítsusneiðum og má því ætla að parið hafi ákveðið að hafa það rólegt og gott heima hjá sér það kvöldið en á myndinni er Gomez skælbrosandi í svartri hettupeysu.

Gomez og Weeknd sáust fyrst saman á stefnumóti á veitingarstað í janúar og hafa verið mikið í sviðsljósinu síðan. Þó svo að mörg Hollywood-pör vinni mikið í því að fela sambönd sín fyrir fjölmiðlum hafa þau Gomez og Weeknd ekki mikið verið að því og eru dugleg að birta myndir hvort af öðru á samfélagsmiðlum.

Nýlega sáust þau á uppistandi í Hollywood þar sem þau héldu hvort utan um annað, hlógu og skemmtu sér konunglega. 

Selena Gomez situr í kjöltu kærasta síns, The Weeknd.
Selena Gomez situr í kjöltu kærasta síns, The Weeknd. Skjáskot/Instagram

Date night at the Laugh Factory with The Weeknd and Selena Gomez

A post shared by Laugh Factory (@laughfactoryhw) on Aug 11, 2017 at 11:35pm PDT


mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson