Fagnaði 54 ára afmælinu nakinn

John Stamos.
John Stamos. AFP

Bandaríski leikarinn John Stamos fagnaði 54 ára afmæli sínu með því að birta nektarmynd af sjálfum sér á Instagram.

„54 ára og hreinn. Takk fyrir afmæliskveðjurnar!“ skrifaði hann undir myndina þar sem hann stendur í útisturtu sem staðsett er í gróskumiklum garði. 

Aðdáendur hans voru ekki lengi að hrósa leikaranum fyrir útlit hans þar sem ein kona sagði hann vera alveg jafnkynþokkafullan og hann var þegar hann var tvítugur.

Stamos er þekktastur fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Full House sem voru gífurlega vinsælir á tíunda áratugnum. Hann hefur einnig komið fram í fjölmörgum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.

#54 and clean. Thanks for the birthday wishes!

A post shared by John Stamos (@johnstamos) on Aug 19, 2017 at 5:46pm PDT



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson