Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian og tónlistarmaðurinn Kanye West eiga von á sínu þriðja barni í janúar. Samkvæmt heimildum TMZ gengur staðgöngumóðir þeirra með stúlku.
Kim Kardashian talaði opinskátt um að hún vildi eignast annað barn en læknar ráðlögðu henni frá því. Staðgöngumóðir var því lausnin.
Staðgöngumóðir þeirra er sögð vera frábær kostur. Hún hefur verið gift í fimm ár og á tvö börn. Hún er með háskólamenntun og í góðu formi sem þykir kostur þegar kemur að fæðingunni.
Fyrir eiga hjónin dótturina North og soninn Saint.